Þessi síða er hætt
Næsta sýning fer fram í gæludýr.is á Korputorgi 2. apríl næstkomandi.
Dagskrá sýningar: Alþjóðleg hundasýning Hundaræktunarfélagsins Rex 2. apríl 2016 í gæludýr.is á Korputorgi Dómari: Aud Eriksen frá Noregi Dagskrá sýningar laugardaginn 2. apríl 2016 10:00 - 10:30 Heimilishundar 10:30 - 10:50 Ungir sýnendur 10:50 - 11:40 Papillon 11:40 - 12:00 Hádegismatur 12:00 - 12:20 Chihuahua snögghærður 12:20 - 12:40 Chihuahua síðhærður 12:40 - 13:15 Japanese Chin 13:15 - 13:25 Coton De Tuléar 13:25 - 14:00 Miniature Pincher 14:00 - 14:15 Hlé 14:15 - 14:25 Pomeranian 14:25 - 14:45 Cavalier King CharlesSpaniel 14:45 - 14:50 Beagle 14:50 - 14:55 Rottweiler 14:55 - 15:05 French Bulldog 15:05 - 15:30 Pug 15:30 - 15:45 Hlé 15:45 - 16:25 Silky Terrier 16:25 - 16:30 Golden Retriever 16:30 - 16:40 Siberian Husky Úrslit ítegundarhópum hefjast kl: 16:50 Úrslit sýningar Haust sýning félagsins þetta árið fór fram helgina 5. og 6. september síðastliðinn í verslun Gæludýr.is á Korputorgi.
Úrslit sýningar eru komin inn á rexhundar.is en úrslit í hverjum smáhundaflokki eru komin inn hér á síðuna. Smáhundarnir áttu góðu gengi að fagna á sýningunni en þeir röðuðu sér allstaðar í sæti í úrslitum sýningar. Papillon var besti hvolpur sýningar í báðum aldursflokkum, 3 - 6 mánaða og 6 - 9 mánaða jafnframt sem Papillon var besti öldungur sýningar. Þetta eru allt rakkar eða þeir: Bjössi, í yngir hvolpa flokki, Höfðatúns Nico í eldri hvolpa flokki og Dalsmynnis Húgó í öldunga flokki sem varð bæði íslenskur og öldungameistari á þessari sýningu. Aðrir meðlimir smáhundadeildarinnar sem kláruðu meistaratitil eru: Jaki Þór - Papillon - íslenskur meistari Dalsmynnis Bingó - Cavalier - íslenskur meistari Dalsmynnis Mikki - Miniature Pinscher - íslenskur og alþjóðlegur meistari ISCH Dalsmynnis Máni - Japanese Chin - alþjóðlegur meistari Perlukots Blúnda - Japanese Chin - alþjóðlegur meistari En besti hundur sýningar var hundur úr smáhundadeildinni. Rétt tæpra 10 mánaða, úr ungliða flokki. Japanese Chin tíkin Perlukots Fluga gerði sér lítið fyrir og hrefti 1.sætið. Við viljum óska öllum sýnendum og eigendum, og ekki má gleyma ræktendum, innilega til hamingju með árangurinn. Við höfum að undanförnu verið að yfirfara got sem hafa verið innan smáhundadeildarinnar seinustu árin og bætt þeim við inn á hverja síðu fyrir sig.
Endilega ef þið sjáið ekki ykkar got þarna, að senda okkur línu. Eins hafur aðeins bæst við myndir í hundarnir okkar, Min Pin, Chin, Papillon og í heimilishundum. Við viljum hvetja ykkur að senda okkur mynd í hundana okkar og eins ef von er á goti hjá ykkur. Eins líka ef rakka eigendur vilja koma rökkunum sínum á framfæri. Til að þeir séu settir á rakka listann þurfa þeir að hafa staðist heilsufarsskoðanirnar sem settar eru fyrir hverja tegund fyrir pörun. 10 ára afmælissýning félagsins fór fram helgina 7. og 8. mars síðastliðinn í verslun gæludýr.is á Korputorgi.
Sýningin gékk vel fyrir sig og vakti happdrætti sem félagið stóð fyrir mikkla lukku. Úrslit sýningar eru komin inn á www.rexhundar.is og hér inn eru komin úrslit úr smáhunda flokkunum. Nokkrir smáhundar kláruðu meistaratitila en eins og áður má sjá meistarana undir sýningar og meistararnir okkar. Við viljum óska eigendum og sýnendum til hamingju með þeirra árangur og hlökkum til að sjá ykkur á viðburðum félagsins. |
Archives
June 2016
Categories |